Liggur í rúminu gegn greiðslu

Mynd fengin af vef Yde Van Deutekom sem liggur í rúminu og selur auglýsingar á ... stækka

Mynd fengin af vef Yde Van Deutekom sem liggur í rúminu og selur auglýsingar á vefsíðu sinni.

Hollenskur námsmaður fær greitt fyrir að liggja í rúminu. Yde Van Deutekom er 22 ára frá Zoetermeer og selur hann auglýsingapláss á vefsíðu þar sem hægt er að sjá hann liggja uppi í rúmi í beinni útsendingu á vefmyndavél.

Þegar blaðamaður mbl.is leit inn hjá honum mátti sjá hann spila tölvuleik og lét fara vel um sig.

Van Deutekom hefur dvalið þrjár vikur í rúminu og þénað um 460 þúsund krónur á uppátækinu.

Á fréttavefnum Ananova.com segir Van Deutekom að svefn sé hans helsta áhugamál og það eina sem hann skari framúr í. „Allir eru að spyrja mig hvað ég vilji gera við líf mitt en ég vil í raun bara sofa."

Sagði Van Deutekom og bætti við að hann héldi sig í rúminu allan daginn nema þegar hann færi í sturtu, á salernið eða til að útbúa mat.

„Það er allt og sumt sem ég vil gera. Vera í rúminu uns ég verð mjög ríkur," sagði hann.

Ríflega 450 þúsund manns hafa heimsótt heimasíðuna hans, www.slapendrijk.nl

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is