Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 5.3.2008
| 13:46
| Uppfært
14:01
Yfirlýsing frá Björk Guðmundsdóttur
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is"Ég hef verið beðin um að senda frá mér yfirlýsingu í kjölfar þess að hafa tileinkað bæði Kósóvó og Tíbet lagið Declare Independence við sitt hvort tilefnið.
Ég legg mikla áherslu á að ég er ekki stjórnmálamaður, heldur fyrst og fremst tónlistarmaður, og sem slíkur tel ég að mér beri skylda til þess að tjá allar hugsanlegar mannlegar tilfinningar. Þörfin til þess að lýsa yfir sjálfstæði er aðeins ein þeirra, en þó mjög mikilvæg tilfinning sem allir finna fyrir á einhverjum tímapunkti í lífi sínu. Þetta lag var í raun samið með einstaklinginn í huga, en sú staðreynd að lagið hefur verið túlkað eins vítt og mögulegt er, yfirfært yfir á undirokaða þjóð, veitir mér mikla ánægju.
Ég óska öllum einstaklingum og þjóðum góðs gengis í baráttu þeirra fyrir sjálfstæði.
Réttlæti!
Með hlýhug, Björk."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









