Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, mun kenna námskeið um „trú og hnattvæðingu“ við Yaleháskóla í Bandaríkjunum næsta vetur, að því er segir í tilkynningu frá skólanum. Mun Blair ennfremur taka þátt í ýmsum viðburðum í skólanum.
Blair tók kaþólska trú í desember, og síðar á þessu ári mun Trúarstofnun Tony Blair (Tony Blair Faith Foundation) verða sett á laggirnar.
Ekki hefur verið gengið nákvæmlega frá kennsluskrá námskeiðsins, og mun Blair einungis þiggja málamyndaþóknun fyrir kennsluna.
Blair lét af embætti forsætisráðherra í júní í fyrra.