Ítalskar konur mega ljúga

Æðsti áfrýjunardómstóll Ítalíu hefur úrskurðað að giftar konur sem halda framhjá maka sínum eigi rétt á að ljúga um það til að vernda heiður sinn.

Frá þessu greinir fréttavefur BBC.

Úrskurðurinn féll í máli tæplega fimmtugrar konu sem fundin hafi verið sek um að bera ljúgvitni við lögregluyfirheyrslu er hún neitaði að hafa lánað ástmanni sínum farsímann sinn.

Áfrýjunardómstóllinn var ekki sammála undirrétti um að konan hefði gerst brotleg við landslög.

Sagði áfrýjunardómstóllinn að það væri réttlætanlegt að fara frjálslega með sannleikann til að hylma yfir framhjáhald.

Ekki fylgir sögunni hvort úrskurðurinn eigi einnig við um karlmenn sem eiga hjákonur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is