Íslendingar stofni brjóstasamtök

„Ég skal gera mitt besta við að koma á sambandi milli sænsku samtakanna Bara bröst og Íslendinga,“ segir Kristin Karlsson, sænska stúlkan sem var rekin berbrjósta upp úr sundlauginni í Hveragerði um síðustu helgi.

Bara bröst-samtökin hafa barist ötullega fyrir jafnrétti kynjanna í vali á baðfatnaði undanfarna mánuði. Hafa stúlkurnar í samtökunum mótmælt með því að fara berbrjósta í sund og vakið heimsathygli fyrir. Kristin Karlsson hóf umræðuna í Svíþjóð þegar hún skrifaði greinar í þarlenda fjölmiðla um málefnið og í kjölfarið voru Bara bröst-samtökin stofnuð.

Leggur sitt af mörkum

„Ég vil leggja mitt af mörkum í umræðunni á meðan ég dvel á Íslandi,“ segir Kristin. Hún leggur áherslu á að hún lítur ekki á atvikið í Hveragerði sem mótmæli. „Ég var ekki að mótmæla,“ segir hún. „Þetta var fallegur dagur – sól og blíða. Ég hætti að klæðast toppnum vegna þess að ég fann ekki ástæðu til að klæðast honum.“

Kristín Tómasdóttir, ráðskona í öryggisráði Femínistafélags Íslands, segir félagið ekki einbeita sér að jafnrétti kynjanna í vali á baðfötum. „Þetta er fín barátta, en neðarlega á okkar efnisskrá,“ segir hún. „Svíþjóð er greinilega mikið fyrirmyndarríki fyrst þær hafa ekki eins alvarlegum málum að sinna og við.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant