Kveðjuhátið Gauksins fór vel af stað

Kiddi Bigfoot, einn skipuleggjenda hátiðarinnar, fyrir framan Gauk á Stöng í Tryggvagötu. stækka

Kiddi Bigfoot, einn skipuleggjenda hátiðarinnar, fyrir framan Gauk á Stöng í Tryggvagötu. Ragnar Axelsson

Lokahátíð Gauks á Stöng hófst í gærkvöldi og fór ótrúlega vel af stað samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum.  Hljómsveitirnar Sign, Ultra Mega Teknóbandið Stefán, Sverrir Bergmann og Hraun riðu á vaðið og kvöddu Gaukinn.  Staðurinn hefur alið af sér alla helstu tónlistarmenn landins en staðurinn hefur verið einn fremsti tónleikapöbb á Íslandi í 25 ár.

Lokahátíðin heldur áfram eftir miðnætti á morgun en þá eru það Noise, Wulfgang, Cliff Clavin og Johnny and the Rest sem koma fram. 

Á laugardeginum spila Brain Police, Deep Jimi & The Zep Creams, Jan Mayen, og Weapons og á sunnudeginum koma m.a Tena Palmer, Mood, og Elín Ey, fram.  Miðasala á hátíðina fer fram við inngang Gauksins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is