Glæsibílar Britneyjar til sölu

Britney Spears (fyrir miðju) í gestahlutverki sínu í sjónvarpsþættinum
Britney Spears (fyrir miðju) í gestahlutverki sínu í sjónvarpsþættinum "How I met Your Mother." AP

Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, hefur fengið leyfi dómara til að selja sjö glæsibifreiðar hennar en Jamie var úrskurðaður fjárhaldsmaður dóttur sinnar í febrúar. Þetta kemur fram á fréttavef Sky. 

Jamie er einnig sagður búa sig undir að fara fram á heimild dómara til þess að flytja hana nauðuga frá Los Angeles til Louisiana, þar sem fjölskylda hennar býr. Er hann sagðir vilja koma henni í burtu frá ljósmyndaranum Adnan Ghalib og vonast til þess að hún geti endurbyggt samband sitt við móður sína og systur. 

Samkvæmt upplýsingum fjölmiðla í Bandaríkjunum er söngkonan á góðri bataleið eftir að hún var tvisvar lögð inn á geðdeild í upphafi þessa árs og hefur hún endurheimt takmarkaðan umgengisrétt sinn við tvo unga syni sína. Nýlega hafnaði dómari hins vegar beiðni föður hennar um að ákæra gegn henni, vegna aksturs án tilskilinna skilríkja, yrði felld úr gildi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson