Ásdís Rán sigurvegari mánaðarins
„Ég er náttúrlega rosalega ánægð. Ég var reyndar búin að vera með forskot allan mánuðinn, svo að þetta kom ekki rosalega á óvart,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, en hún bar sigur úr býtum í fyrirsætukeppninni The Million Dollar Woman eftir harða baráttu síðustu vikur.
Keppnin fer þannig fram að almenningur getur kosið flottustu stúlkuna á vefsíðunni isshehot.com og í hverjum mánuði fer ein með sigur af hólmi. Næstkomandi janúar munu svo sigurvegarar hvers mánaðar etja kappi í raunveruleikaþætti sem fram fer í Sidney, en sigurlaunin eru milljón dollarar.
Eins og fram kom í 24 stundum á dögunum þurfti Ásdís að lúta í lægra haldi í febrúar, þegar hún datt niður í annað sætið á síðustu stundu, en þegar úrslit marsmánaðar voru kunngjörð var ljóst að Ásdís sigraði með yfirburðum.
„Það er búið að vera þvílík vinna að halda mér á toppnum í mars. Maður þarf endalaust að minna fólk á að kjósa. Annars er ótrúlegt hvað fólk hefur verið duglegt. Ég er virkilega þakklát,“ segir Ásdís, og bætir við að flestir hafi tekið þátttöku sinni í keppninni afar vel.
„Það var svona 90% ánægja. Hin tíu prósentin voru staðir eins og Barnaland og fleira. Annars finnst mér viss sigur að hafa náð til svona margra á Íslandi. Það hafa nefnilega verið fordómar gegn akkúrat svona hlutum á Íslandi.“
Auglýsir eftir styrkjum
Raunveruleikaþættirnir hefjast í janúar og kveðst Ásdís munu taka vel á því í ræktinni þangað til.„Ég er búin að eignast tvö börn nýlega og þarf aðeins að vinna að því að koma mér í gott form. Annars hef ég nú oft tekið mig í gegn og veit því alveg hvað ég á að gera. Maður vill auðvitað vera stæltur og flottur kroppur. En ég auglýsi eftir einkaþjálfurum og öðrum sem geta styrkt mig varðandi fæðubótarefni, trimform og fleira. Allt sem gerir mig flottari!“ segir Ásdís.
Annars er það af fyrirsætunni að frétta að tilboðin streyma inn um lúguna. Nú síðast bauðst henni samningur við fyrirtækið D-Brand um hönnun sinnar eigin gallabuxnalínu í Skandinavíu.










