Átta ára stúlku veittur lögskilnaður

Skólastúlkur í Jemen. stækka

Skólastúlkur í Jemen. Reuters

Dómstóll í Jemen hefur veitt átta ára stúlku lögskilnað frá 28 ára eiginmanni sínum.  Nojud Mohammed Ali var neydd til þess að giftast manninum fyrr á árinu, en sagðist fegin því að hafa fengið skilnað því nú geti hún farið aftur í skóla. 

Faðir stúlkunnar kom hjónabandinu í kring og sagðist hafa gert það af skyldurækni og vegna þess hann óttaðist að henni yrði rænt, eins og eldri systur hennar.
 
Faez Ali Thameur, fyrrum eiginmaður Nojud, sagðist hafa gifst henni með samþykki hennar og foreldra hennar, og viðurkenndi að hafa átt mök við stúlkuna.

Að sögn Nojud var henni sagt að hún mætti búa í foreldrahúsum til 18 ára aldurs þótt hún giftist manninum, en viku eftir að hún skrifaði undir hjónabandssáttmála, var hún neydd til þess að búa með eiginmanninum.

Í Jemen er enginn löglegur lágmarksaldur fyrir hjónaband, og sagði lögfræðingur stúlkunnar að hennar mál væri ekki einsdæmi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
Í gær, 23:56 Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

Lögreglumaður í leit að sjálfum sér

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar.
í fyrradag Breska lögreglan notast mikið við eftirlitsmyndavélar við störf sín. Á dögunum varð lögreglumaður sem var að fylgjast með skjánum var við grunsamlegan mann. Lögreglumaðurinn hafði samband við lögreglumann sem var nálægur og bað hann um að svipast um eftir grunsamlega manninum. Leitin tók enda eftir um 20 mínútur þegar lögreglumaðurinn áttaði sig á að hann var að leita að sjálfum sér. Meira »

Ætluðu í brúðkaupsferð til Íslands

Trúlofunarhringur brúðarinnar er nú í höndum kóna.
Í gær, 21:57 Nýgift bresk hjón sem ætluðu í brúðkaupsferð til Íslands, voru rænd og þurfa að nota peningana sem voru eyrnamerktir ferðinni í þjófavarnarkerfi. Trúlofunarhringur brúðarinnar og vegabréf brúðgumans voru meðal þess sem þjófarnir tóku. Meira »

Glæpamennirnir halda sig inni

Vopnaður lögreglumaður stendur vaktina við öryggisfangelsi í kuldanum í Belgrad, höfuðborg Serbíu.
8.2. Mikið kuldakast hefur verið í Serbíu að undanförnu með tilheyrandi snjóþunga. Veðrið hefur ekki aðeins haft áhrif á líf almennra borgara því glæpamenn hafa haft frekar hægt um sig í vetrarfærðinni. Ríkisstjórn landsins hefur greint frá því að glæpatíðnin hafi dregist saman um 40% að undanförnu. Meira »

finnur.is