Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AP
| 15.4.2008
| 7:26
Þjófur í járnum stal lögreglubíl
Lögreglan í Brisbane í Ástralíu leitar nú þjófs sem slapp úr haldi lögreglu með því að stela lögreglubíl - þrátt fyrir að vera í handjárnum. Bíllinn er fundinn, en hvorki hefur sést tangur né tetur af þjófnum.
Lögreglan segir að 29 ára maður hafi verið handtekinn í morgun, grunaður um þjófnað. Tveir lögreglumenn handjárnuðu hann og settu hann í aftursæti lögreglubílsins á meðan þeir voru að skoða poka fyrir utan.
Hinn meinti þjófur klifraði þá í framsætið, settist undir stýri og ók á brott. Segjast lögreglumennirnir hafa skilið lyklana eftir í bílnum.
Málið er í rannsókn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









