Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 18.4.2008
| 15:05
Damion Rice leikur í Bræðslunni
Damien Rice. mbl.is
Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice verður meðal þeirra sem koma fram á tónlistarhátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystra helgina 25.-27. júlí í sumar. Einnig verða Emilíana Torrini og Magni Ásgeirsson meðal flytjenda.
Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndum síldarskúr þar sem tónleikar hátíðarinnar fara fram í ansi skemmtilegri umgjörð.
Damien Rice hefur tvívegis haldið tónleika hér á landi og gefið út tvær plötur sem notið hafa mikilla vinsælda. Hann hefur verið beðinn um að koma fram á þrennum tónleikum Leonard Cohen á Írlandi í sumar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin










