Bók um Jesús eftir Paul Verhoeven væntanleg

Paul Verhoeven.
Paul Verhoeven.

Bók um Jesú Krist eftir hollenska kvikmyndaleikstórann Paul Verhoeven er væntanleg. Bókin heitir “Jezus van Nazareth” eða Jesús frá Nazareth og í henni er velt upp hugmyndum sem stangast á við kristna trú. Í bókinni er talað um að Jesús hafi verið sonur manns sem nauðgaði Maríu og að Júdas hafi ekki svikið Jesús.

Verheoven er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við Basic Instinct og Robocop en færri vita að hann tilheyrir hópi fræðimanna og höfunda sem leita eftir sagnfræðilegum staðreyndum um líf Jesú.  

Bókin mun án efa vekja mikla athygli og mikið umtal. Hún verður gefin út í september í Hollandi og á enskri tungu á næsta ári. Verhoeven vonast eftir góðum móttökum og geta hugsanlega fengið að kvikmynda bókina en hann hefur lengi vilja gera kvikmynd um Jesús. Þá myndi Verhoeven slást í hóp með Mel Gibson og Martin Scorsese. Gibson sendi frá sér myndina „The Passion of the Christ“ árið 2004 og vakti hún mikla athygli og umtal. Þá gerði Martin Scorsese myndin „The Last Temptation of Christ“ árið 1988 og vakti hún ekki síður athygli á sínum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson