Tímatalinu breytt í Túrkmenistan

Stytta af fyrrverandi forseta Túrkmenistan

Stytta af fyrrverandi forseta Túrkmenistan STR

Gúrbangúlíj Malíkgúlíjevítsj Berdímúkhammedov, forseti Túrkmenistan hefur ákveðið að fella úr gildi tímatal sem tekið var upp í tíð fyrirrennara hans, Saparmúrat Níjazov. Þar eru mánuðirnir nefndir eftir forsetanum fyrrverandi og foreldrum hans.

En nú verður breytinga þar á og mánuðir og dagar bera nú sömu heiti og víðast annars staðar að sögn Berdímúkhammedov.  Er þar farið að ósk fjölda landsmanna sem sendu forsetanum bréf þar sem þeir óskuðu eftir því að gregoríanska tímatalið yrði tekið upp að nýju í landinu.

Níjazovbreytti tímatalinu árið 2002 en hann var ötull við að koma sér og sínum að í öllum málefnum Túrkmenistan. Til að mynda nefndi hann sjálfan sig Túrkmenbasa, eða föður alla íbúa Túrkmenistan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is