Friðarsöngur seldur á uppboði

John Lennon.

John Lennon. AP

Textinn við lagið Give Peace A Change, sem John Lennon handskrifaði á blað, verður seldur á uppboði hjá Christie's í Lundúnum í júlí. Búist er við að textinn seljist á allt að 300 þúsund pund, jafnvirði um 44 milljóna króna.

Lennon samdi textann þegar hann og Yoko Ono, kona hans, dvöldu í rúminu í átta daga í herbergi 1742 í Queen Elizabeth hótelinu í Montréal í Kanada árið 1969. Hann gaf textablaðið síðan 16 ára gamalli stúlku, Gail Renard, sem tókst að smjúga fram hjá öryggisvörðum inn í herbergi Lennons og taka við hann viðtal fyrir skólablað.

Svo vel fór á með Renard og Lennonhjónunum, að stúlkan dvaldi með þeim í herberginu í viku. Renard er nú að selja textablaðið ásamt myndum frá þessum tíma.

Lagið Give Peace A Chance var tekið upp í hótelherberginu og meðal gesta var skáldið Allen Ginsburg, LSD-prédikarinn Timothy Leary og félagar í Hare Krishna musteri í Kanada. Lagið, sem Plastic Ono Band flutti, komst í 14. sæti á bandaríska vinsældalistanum og var fyrsta sólóplatan, sem meðlimur í Bítlunum gaf út en hljómsveitin hætti ári síðar.

Lagið varð síðar tákn baráttumanna fyrir friði, einkum þeirra sem vildu binda enda á stríðið í Víetnam. Því lauk 1975.

John Lennon var myrtur í New York árið 1980.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is