Hringt í mann þegar greiðslukort voru samþykkt

Símhringingar til þýsks manns voru að gera hann brjálaðan í tvö ár. Síminn hringdi, maðurinn svaraði og aldrei fékk hann svar. Í ljós kom að hringingarnar komu frá hárgreiðslustofu í hvert skipti sem greiðslukort var samþykkt.   

Lögreglan í Frankfurt aðstoðaði manninn við að hafa upp á aðilanum sem var sífellt að hringja í hann. Hann þekkti ekki númerið sem birtist og því lét hann loka fyrir númerið. Eftir fáeina mánuði vildi maðurinn ekki lengur borga fyrir þjónustuna og símhringingarnar urðu tíðari.  Lögreglan rakti númerið til hárgreiðslustofu í Hamborg.

 Fyrirkomulagið með greiðslu var þannig að hringt var í manninn í hvert skipti sem greiðslukort var samþykkt. Starfsfólkið vissi ekki af vandanum.

“Þegar hann svaraði í símann fékk hann aldrei svar á móti. Ekki fékk hann svar heldur þegar hann hringdi til baka,” sagði talsmaður lögreglunnar í Frankfurt, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.  
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

finnur.is