Stefán Hilmarsson söngvari var kjörinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2008. Kjör heiðurslistamanns Kópavogs fyrir árið 2008 og afhending styrkja fór fram á hátíðardagskrá lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar í Salnum síðdegis í dag.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ kemur fram að styrkir hafi verið veittir listamönnum í Kópavogi frá árinu 1985. Að þessu sinni samþykkti lista- og menningarráð að veita tveimur listamönnum starfsstyrk úr lista- og menningarsjóði að fjárhæð 300 þúsund krónur hvor, þeim Kjartani Sigurjónssyni organista og Þóru G. Gunnarsdóttur myndlistarmanni.
Jafnframt hlutu þrír framúrskarandi listnemar í Kópavogi viðurkenningu og styrk að upphæð kr. 150 þúsund hver. Þeir eru Arna Óttarsdóttir fyrir myndlist, Eva María Árnadóttir fyrir fatahönnun og Joaquin Páll Palomares fyrir fiðluleik.