Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 14.5.2008
| 18:31
| Uppfært
15.5.2008
0:00
Stefnir á nýtt met í þyngdarmissi
Manuel Uribe, eitt sinn þyngsti maður heims, keppist nú við að ná nýju meti í megrun. Manuel, var einu sinni hálft tonn að þyngd, hefur nú þegar lést um 235 kíló, og stefnir á að missa 130 kíló til viðbótar á næstu árum.
Manuel segist hafa borðað mikið af kolvetnum, en hann hefur ekki staðið upp úr rúminu í sex ár vegna þyngdar sinnar. Manuel varð þekktur eftir að hann kom fram í sjónvarpi og bað um hjálp og nú nýtur hann aðstoðar læknis frá Bandaríkjunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









