McCain klæðist ekki kjól

John McCain myndi sennilega ekki líta mjög vel út í kjól. stækka

John McCain myndi sennilega ekki líta mjög vel út í kjól. AP

Það eru takmörk fyrir því hve langt John McCain mun ganga í tilraun sinni til að ná til ungu kynslóðarinnar. Að klæðast kjól fer langt yfir strikið, finnst  honum.  

McCain, sem væntanlega verður forsetaefni Repúblikanaflokksins, mun koma fram í grínþættinum Saturday Night Live og vonast hann eftir því að geta náð til ungra kjósenda. „Mér finnst Obama hafa staðið sig gríðarlega vel í að ná til ungra kjósenda. Við þurfum líka að standa okkur í þeim efnum“, sagði McCain. 

McCain lætur rithöfunda þáttanna ákveða hvernig best sé að nota sig en hann þvertekur fyrir það að klæðast kjól líkt og fyrrverandi borgarstjóri New York, Rudy Giuliani, gerði eitt sinn. „Ekki séns,“ sagði McCain þegar hann var spurður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is