Kvikmynd gerð eftir Alkemistanum

Laurence Fishburne mun leikstýra og leika í kvikmyndinni sem gerð verður eftir metsölubókinni Alkemistinn.

Laurence Fishburne mun leikstýra og leika í kvikmyndinni sem gerð verður eftir metsölubókinni Alkemistinn. AP

Ákveðið hefur verið að gera kvikmyndaútgáfu af metsölubókinni Alkemistinn eftir brasilíska rithöfundinn Paulo Coelho.  Á fréttavef BBC kemur fram að Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandi, staðfesti þetta á Cannes kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Frakklandi.  Bandaríski leikarinn Laurence Fishburne mun leika, leikstýra, og framleiða myndina í samvinnu við framleiðslufyrirtæki Weinsteins.

Sagan segir frá spænska fjárhirðinum, Santiago, sem ferðast til Afríku í leit að draumum sínum og þar hittir hann m.a alkemistann.  Bókin var gefin út árið 1988 og hefur hún selst í meira en 30 milljónum eintaka um allan heim. 

Tökur á myndinni munu hefjast eftir ár víðsvegar um Evrópu, Norður-Afríkum, og í Miðausturlöndum, og stendur leit að leikurum nú yfir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is