Hjólreiðamaður í steininn

stækka

mbl.is

Rússneskur dómstóll hefur dæmt karlmann í tíu daga fangelsi fyrir að hafa nýlega vakið athygli á bágum aðstæðum fyrir hjólafólk í St. Pétursborg með því að hjóla nakinn um götur borgarinnar.

Roman Lutoshkin hjólaði nakinn ásamt 40 fullklæddum hjólamönnum um borgina, en ferðinni lauk á torginu fyrir framan Vetrarhöllina þar sem Lutoshkin lét mynda sig með kröfuspjöld. Ekki er ljóst hvort borgaryfirvöld hyggist bregðast við kröfunum. aí

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
Í gær, 21:04 Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í gær Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í gær Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
í fyrradag Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

finnur.is