Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| 24 stundir
| 6.6.2008
| 5:30
| Uppfært
6:31
Bubbi Morthens á afmæli í dag
Bubbi Morthens á afmæli í dag en auk þess að fagna því að hafa farið 52 hringi í kringum sólina heldur hann útgáfutónleika í kvöld í Borgarleikhúsinu. Seinkun var þó á nýju plötunni, Fjórir naglar, en hún ætti að skila sér í búðir um miðja næstu viku. Stærsti viðburður vikunnar er þó á morgun, þegar hann gengur að eiga ástkonu sína Hrafnhildi Hafsteinsdóttur á Reynivöllum í Kjós.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









