Nærir svefninn hamingjuna?

mbl.is/Þorkell

Konur sem eru hamingjusamlega giftar sofa betur og meira en konur í óhamingjusömum hjónaböndum samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Samkvæmt þeim eiga hamingjusamlega giftar konur 10% meiri líkur á góðum nætursvefni en konur sem eru ósáttar við maka sinn. Þetta kemur fram á fréttavefnum HealthDay Reporter .

 „Hjónaband getur haft góð áhrif á svefnvenjur fólks, sú um hamingjusamt hjónaband að ræða. Óhamingjusöm hjónabönd auka hins vegar líkurnar á svefntruflunum,” segir  Wendy M. Troxel, sálfræðingur við háskólann í Pittsburgh sem stjórnaði rannsókninni. Hún segir hins vegar ekki ljóst hvort óhamingjan leiði til svefnleysis eða svefnleysið til óhamingju.

„Við erum að undirbúa frekari rannsóknir þar sem við munum leita svara við þessu,” segir hún. „Sofi fólk ekki vel verður það ergilegra og það þarf minna til að hleypa því upp þannig að það er hugsanlegt að svefnleysi hafi þessi áhrif á hjónabandið. Við teljum hins vegar að áhrifin séu meiri í hina áttina.”

Rannsóknin er byggð á gögnum um 2.000 giftar konur sem tóku þátt í  rannsókninni Study of Women's Health Across the Nation (SWAN) en meðalaldur þeirra var 46 ár. Gerðu konurnar m.a. grein fyrir ástandi hjónaband síns og  svefnvenjum og sögðust konur sem töldu sig hamingjusamlega giftar eiga auðveldara með að sofna og sofa betur og lengur en konur sem ekki töldu hjónabönd sín jafn hamingjusöm.  Við rannsóknina var einnig tekið tillit til annarra þátta sem vitað er að hafa áhrif á svefnvenjur fólks.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ætluðu í brúðkaupsferð til Íslands

Trúlofunarhringur brúðarinnar er nú í höndum kóna.
21:57 Nýgift bresk hjón sem ætluðu í brúðkaupsferð til Íslands, voru rænd og þurfa að nota peningana sem voru eyrnamerktir ferðinni í þjófavarnarkerfi. Trúlofunarhringur brúðarinnar og vegabréf brúðgumans var meðal þess sem þjófarnir tóku. Meira »

Glæpamennirnir halda sig inni

Vopnaður lögreglumaður stendur vaktina við öryggisfangelsi í kuldanum í Belgrad, höfuðborg Serbíu.
í gær Mikið kuldakast hefur verið í Serbíu að undanförnu með tilheyrandi snjóþunga. Veðrið hefur ekki aðeins haft áhrif á líf almennra borgara því glæpamenn hafa haft frekar hægt um sig í vetrarfærðinni. Ríkisstjórn landsins hefur greint frá því að glæpatíðnin hafi dregist saman um 40% að undanförnu. Meira »

Lögreglumaður í leit að sjálfum sér

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar.
í gær Breska lögreglan notast mikið við eftirlitsmyndavélar við störf sín. Á dögunum varð lögreglumaður sem var að fylgjast með skjánum var við grunsamlegan mann. Lögreglumaðurinn hafði samband við lögreglumann sem var nálægur og bað hann um að svipast um eftir grunsamlega manninum. Leitin tók enda eftir um 20 mínútur þegar lögreglumaðurinn áttaði sig á að hann var að leita að sjálfum sér. Meira »

Frosið súrkál olli umferðaröngþveiti

í gær Gríðarlegt umferðaröngþveiti varð á hraðbraut í Þýskalandi í gærmorgun þegar staflar af súrkáli féllu úr flutningabifreið sem ók aftan á annan bíl. Súrkálið fraus fast við veginn og olli 10 km langri umferðarteppu á háannatíma. Meira »

finnur.is