Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 11.6.2008
| 15:17
| Uppfært
16:08
Damien Rice heldur tónleika á NASA
Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice verður staddur á Íslandi í lok júlí til að taka þátt í tónlistarhátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystri. Hefur hann nú ákveðið að halda tónleika í Reykjavík fimmtudagskveldið 24. júlí á NASA við Austurvöll.
Damien Rice nýtur mikilla vinsælda hér á landi og hefur þrívegis haldið hér tónleika.
Forsala á tónleikana á NASA hefst 19. júní kl. 10 á vefnum midi.is og útsölustöðum mida.is.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









