Hvílir bölvun á Bondmynd?

Daniel Craig meiddist lítillega við tökur í morgun.

Daniel Craig meiddist lítillega við tökur í morgun. AP

Daniel Craig var fluttur á spítala í morgun eftir að hafa misst framan af fingurgómi við tökur. Leikarinn sneri aftur seinni partinn.

Margir hafa talað um að bölvun hvíli á myndinni, The Quantum of Solace, þar sem mörg slys hafa orðið síðan framleiðsla hófst.

Leikarinn þurfti að láta sauma átta spor í andlitið fyrir viku eftir að hafa skorist við tökur. Ökumaður slasaðist í apríl þegar hann steypti bíl njósnarans fræga, Aston Martin, í hið ítalska Gardavatn. Nokkrum dögum síðar slasaðist áhættuleikari alvarlega þegar bíll sem hann keyrði rakst á aðra. Verið var að kvikmynda eltingaleik.

Stjörnur myndarinnar, Daniel Craig og Olga Kurylenko, nýja Bondstúlkan, hafa sjálf framkvæmt sín eigin áhættuatriði.

Daniel Crag tjáði fréttastofu Sky í maí að: Það gæti verið sár reynsla að taka upp Bond-mynd.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is