Björk og Sigur Rós ekki á topp 100

Björk Guðmundsdóttir.

Björk Guðmundsdóttir. mbl.is/Ómar

Út er kominn kassi með fimm geislaplötum sem sagðar eru innihalda 100 bestu lög lýðveldisins. Það er Sena sem gefur safnið út, en 30 einstaklingar voru fengnir til að velja þau 30 lög sem þeir töldu bestu lög íslenskrar dægurtónlistar, og voru 100 lög svo tekin úr þeim niðurstöðum. Sérstaka athygli vekur að Bubbi Morthens á flest lög í safninu, en hann er flytjandi 10 laga á plötunum, ýmist einn eða með hljómsveit. Þá eru 12 laganna flutt á ensku, eða 12%, sem verður að teljast nokkuð merkileg tölfræði. Það skýtur hins vegar nokkuð skökku við að þekktustu tónlistarmenn Íslandssögunnar, Björk og Sigur Rós, eigi ekkert lag í safninu. Á því er þó eðlileg skýring; þau vildu hreinlega ekki eiga lög á plötunum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is