Bakveikur vegna hamagangs í rúminu

Hugh Hefner með sambýliskonum sínum þremur
Hugh Hefner með sambýliskonum sínum þremur MARIO ANZUONI

Hugh Hefner, eigandi Playboy tímaritsins,  þjáist af bakverkum vegna þess að hann eyðir of miklum tíma í að hamast í rúminu með vinkonum sínum. Þetta kom fram í viðtali við Hefner, sem er 82 ára, á Fox sjónvarpsstöðinni. Hefner býr með þremur stúlkum á Playboy setrinu í Los Angeles.

„Ég þjáist af verkjum en ég hef átt við bakvandamál að stríða síðan á níunda áratugnum. Of mikill tími í að hamast í rúminu með vinkonum," sagði Hefner í viðtalinu.

Hefner sagði einnig að það hafi ekki vakið mikla hrifningu í fjölskyldunni þegar hann ákvað að hefja útgáfu á Playboy tímaritinu á sínum tíma. Hann hafi hins vegar haldið sínu striki enda gamall draumur sem varð síðan að veruleika. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant