Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 25.6.2008
| 18:59
Of margir fljúga fullir
Indverskir flugmenn falla of oft á áfengisprófi. Reuters
Árlega eru um fimmtíu flugmenn á Indlandi kyrrsettir eftir að hafa flogið farþegaflugvélum undir áhrifum áfengis. Ástæðan er sögð meðal annars vera sú að iðnaðurinn er í örum vexti og samkeppni mikil og oft eru flugmenn beðnir að taka að sér verkefni með með stuttum fyrirvara.
Samkvæmt frétt Reuters fréttastofunnar eru á bilinu 4500 til 5000 atvinnuflugmenn starfandi á Indlandi og 2500 í þjálfun.
Flugmenn mega ekki neyta áfengis 12 klukkustundum fyrir flugtak.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









