Winehouse sýndi blaðamanni kynlífsmyndir

Amy Winehouse
Amy Winehouse Reuters

Amy Winehouse er óumdeilanlega hæfileikarík en hún hefur selt heilu bílfarmana af geisladiskum og sankað að sér verðlaunum. Ný grein í Rolling Stone virðist þó staðfesta það sem flestir óttast, að Amy sé svo djúpt sokkin í eiturlyfjaneyslu að hún muni kannski aldrei gefa út aðra plötu.

Í greininni viðurkennir Amy að hafa neytt eiturlyfja í meðferðinni sem hún fór í fyrir stuttu og segir að ástæða þess að Blake eiginmaður hennar hafi tekið hana upp á vídeó þar sem hún liggur í eiturlyfjamóki hafi verið sú að honum hafi fundist hún svo falleg. Myndbandið var tekið upp í brúðkaupsferðinni þeirra og Amy segir það vera mjög eðlilegt. Blaðamaðurinn segir frá því að heimili Amy sé hlaðið rusli og drasli og þar gangi alls konar lið inn og út allan sólarhringinn. Þegar hún biður vinkonu sína að sýna blaðamanni brúðarmyndirnar sínar sér hann alls kyns myndir af henni og Blake neyta eiturlyfja og skyndilega birtist á skjánum mynd af Amy með „risastórt typpi“ í munninum. Amy virðist ekki gera neina tilraun til að vernda einkalíf sitt því blaðamaðurinn fékk greinilega aðgang að hennar persónulegustu myndum. Greinina er hægt að lesa á www.rollingstone.com.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson