Kvikmynd um Leðurblökumanninn setur aðsóknarmet

Heath Ledger í hlutverki Grínarans í myndinni um Leðurblökumanninn.
Heath Ledger í hlutverki Grínarans í myndinni um Leðurblökumanninn.

Ný kvikmynd um Leðurblökumanninn hefur sett aðsóknarmet í Norður-Ameríku en myndin var frumsýnd þar á fimmtudag. Tekjur af sýningu myndarinnar á fyrsta sýningardegi námu 66,4 milljónum dala, jafnvirði nærri 5,3 milljörðum króna. Er þetta 6,5 milljónum dala meiri tekjur en voru frumsýningardaginn af þriðju myndinni um Köngulóarmanninn, sem frumsýnd var á síðasta ári.

Líklegt er talið að myndin slái einnig frumsýningarhelgartekjumet Köngulóarmannsins, sem var 151 milljón dala.

Myndin hefur fengið afar góða dóma gagnrýnenda, einkum þó frammistaða ástralska leikarans Heath Ledger, sem lést fyrr á þessu ári. Christian Bale leikur aðalhlutverkið eins og í síðustu mynd en einnig leika í myndinni stórstjörnur á borð við Michael Caine, Morgan Freeman, Gary Oldman og Maggie Gyllenhaal. Christopher Nolan leikstýrði myndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant