Óblíð náttúra og lundar hrelldu Ramsey

Gordon Ramsey.
Gordon Ramsey.

Breski sjónvarpskokkurinn orðljóti Gordon Ramsey segist hafa verið í lífshættu þegar hann var að veiða lunda á Íslandi nýlega. Hann hrasaði þegar hann var að klifra í klettum og datt í sjóinn. Þá beit skapvondur lundi Ramsey í nefið.

Ramsey ætlar að fjalla um lunda í væntanlegum matreiðsluþætti og kom því hingað til að veiða og læra að matreiða þennan fugl. Hann segir við Daily Telegraph í dag, að hann hafi haldið að sín síðasta stund væri runnin upp þegar hann datt úr klettinum og svamlaði í sjónum í fjallgönguskóm og regngalla.

„Ég hélt að þetta væri búið. Þeir segja að kettir hafi níu líf. Ég hef eytt 12 lífum nú þegar og veit ekki hve mörg ég á eftir. Ég man að ég hugsaði: Andsk... sjálfur. Stígvélin mín og regngallinn drógu mig niður. Ég er frábær sundmaður en ég komst ekki upp á yfirborðið.

Það greip mig skelfing og lungun voru að fyllast af vatni. Þegar ég komst loks upp á yfirborðið eftir að hafa losað mig við skóna var ég ringlaður og tómur í höfðinu."

Blaðið segir, að Ramsey hafi verið í kafi í um 45 sekúndur en kvikmyndatökumennirnir köstuðu til hans kaðli og drógu hann síðan á þurrt.

Ramsey segist fyrst ekki hafa þorað að segja Tönu, eiginkonu sinni, frá því sem gerðist.  „En hún vissi að eitthvað hafði gerst. Hún var í miklu uppnámi og brjáluð út í mig. En þegar ég var í kafi hugsaði ég bara um Tönu og krakkana mína." 

Ramsay fékk skurð á fótinn. Gert var að sárum hans á hótelinu á Íslandi en hann lét síðar lækni líta á sárið í Lundúnum.

Fótarsárið var ekki eini áverkinn, sem Ramsey fékk á Íslandi. Reiður lundi beit hann í nefið þar sem hann var að taka myndir í Vestmannaeyjum. Sama þurfti þrjú spor í nefið og förðunarmeistarar þurftu að taka á honum stóra sínum til að fela skrámuna. 

„Ég sagði öllum, að einn krakkinn minn hefði slegið mig. Ég skammaðist mín fyrir að segja að ég hefði lent í lunda. Við máttum veiða 1000 lunda. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hvað það er erfitt að matreiða þá en þeir smakkast frábærlega."

Grein Daily Telegraph

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant