Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 30.7.2008
| 12:30
Vanrækti konuna á klósettinu
Lúxusklósett frá Kína. mbl.is
Maðurinn var upphaflega dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar en dómurinn yfir honum var mildaður eftir að konan bað honum vægðar.
„Hún telur hann ekki bera ábyrgð á aðstæðum sínum," segir skipaður lögfræðingur konunnar.
Málið komast upp er Kory McFarren hrindi í yfirvöld í febrúar á þessu ári og lýsti áhyggjum af konunni. Sagði hann hana hafa neitað að koma út af baðherberginu í tvö ár.
Læknar telja að hún hafi setið samfleytt á klósettinu í a.m.k. sex mánuði og að á þeim tíma hafi sár á líkama hennar gróið saman við klósettsetuna.Konan er nú undir læknishendi og í umsjón forráðamanna sem henni voru skipaðir.
McFarren var einnig fundinn sekur um ósæmilegt afhæfi gagnvart unglingi í mars á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








