Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 10.8.2008
| 21:39
Isac Hayes látinn
Isaac Hayes.. AP
Bandaríski tónlistarmaðurinn Isaac Hayes lést í dag á heimili sínu í Memphis í Tennessee, 65 ára að aldri. Hayes fékk m.a. Óskarsverðlaun árið 1971 fyrir lag sitt Theme From Shaft. Þá talaði hann fyrir persónuna Chef í teiknimyndunum South Park.
Banamein Hayes er ekki ljóst en hann átti við vanheilsu að stríða, fékk m.a. heilablóðfall árið 2006.
Isaac Hayes var á ofanverðri síðustu öld í hópi virtustu tónlistarmannanna í Bandaríkjunum, sem fluttu svonefnda soul tónlist. Hann var sjálfmenntaður og lék á píanó og saxófón auk þess að syngja.
Hayes var fjórkvæntur og eignaðist 12 börn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









