Amiina og Sigur Rós eignast afkvæmi

Amiina fylgdi ekki Sigur Rós til Ástralíu vegna óléttu Maríu Huldar enda ekki á þungaða ... stækka

Amiina fylgdi ekki Sigur Rós til Ástralíu vegna óléttu Maríu Huldar enda ekki á þungaða konu leggjandi að fljúga í 24 klukkustundir. mbl.is/Kristinn

Morgunblaðið Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is

Hljómsveitin Sigur Rós er um þessar mundir á tónleikaferðalagi um Evrópu, en sveitin hélt tónleika í Köln í Þýskalandi í gær, og heldur aðra í Wiesbaden í kvöld.

Í byrjun þessa mánaðar var sveitin stödd í Ástralíu, en þar hélt hún tónleika í Melbourne í Sydney og Byron Bay. Upphaflega stóð til að hljómsveitin Amiina myndi leika með sveitinni á umræddum tónleikum, en ekkert varð af því. Á bloggi Sigur Rósar segir John Best, umboðsmaður sveitarinnar, að á þessu sé einföld skýring; María Huld Markan Sigfúsdóttir, meðlimur Amiinu, eigi von á barni og hafi því ekki viljað sitja í flugvél í heilan sólarhring til þess að koma fram á þrennum tónleikum á þremur dögum, og fljúga svo í annan sólarhring til að komast aftur heim.

„Amiina mun aðeins koma fram á nokkrum tónleikum með Sigur Rós í Evrópu á næstunni, og svo er þetta bara allt búið,“ skrifar Best meðal annars á bloggsíðunni.

Svo skemmtilega vill til að unnusti Maríu er Kjartan Sveinsson, hljómborðsleikari Sigur Rósar.

Gleymdi textanum

Fleira skemmtilegt kemur fram á bloggi umboðsmannsins. Þannig segir hann frá því hvernig hann hafi húðskammað meðlimi Sigur Rósar fyrir tónleikana í Sydney, því þeir hafi ekki viljað fara að ráðum hans um að breyta lagalistanum á tónleikunum. Eftir tónleikana hafi hann hins vegar verið svo stoltur af frammistöðu þeirra að hann hafi næstum því séð ástæðu til að biðja þá afsökunar.

Þá rifjar hann einnig upp tónleika sveitarinnar í Arras í Frakklandi hinn 6. júlí, en þar gleymdi Jónsi textanum í laginu „Inní mér syngur vitleysingur“. Söngvarinn bjargaði sér þó fyrir horn með því að syngja m.a. textabrotin „... búinn að gleyma textanum...“ og „... enginn skilur neitt...“.

Sjá má uppákomuna á YouTube.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is