Klónastríðin hefjast

George Lucas með Jet syni sínum og Mellody Hobson vinkonu …
George Lucas með Jet syni sínum og Mellody Hobson vinkonu sinni. Reuters

Sérstök forsýning var á Stjörnustríðsteiknimyndinni The Clone Wars í Hollywood á sunnudaginn, en myndin fer í almennar sýningar ytra á föstudaginn og verður frumsýnd hérlendis þann 29. ágúst.

George Lucas var mættur með kærustuna Mellody Hobson upp á arminn sem og geimstúlkuna Ahsoka Tano. Þarna voru einnig mætt ógrynni Stormsveitarmanna og heiðursvélmenni á borð við R2D2 og C3PO sem og ýmsir leikarar sem léðu persónum raddir sínar í myndinni. Þá voru leikarar á borð við Forest Whitaker og Seth Green á svæðinu.

Menn hafa beðið lengi eftir mynd með þessu nafni, en orðrómur um að einhver Stjörnustríðsmynd ætti að heita eftir þessu stríði hefur verið þrálátur og spáðu menn þessari nafngift á allar myndirnar þrjár í nýju seríunni. Þessi á hins vegar að gerast á milli annarar og þriðju myndarinnar (Attack of the Clones og Revenge of the Sith).

Anakin Skywalker og Obi-Wan Kenobi koma báðir við sögu en einnig eru nýjar persónur eins og Rotta the Hut, sonur hins ófrýnilega Jabba the Hut og áðurnefnd geimstúlka, Ahsoka Tano, sem er lærlingur Anakins. Ýmsir aukaleikarar úr bíómyndunum, svo sem Samuel L. Jackson og Christopher Lee, munu endurtaka hlutverk sín en það eru nýir leikarar sem ljá stærri persónum raddir sínar.

Upphaflega áttu The Clone Wars raunar aðeins að vera sjónvarpsþættir en þegar Lucas sá fyrstu senurnar þá ákvað hann að bíómynd yrði gerð fyrst, hún mun svo leiða inn í sjónvarpsþættina sem væntanlegir eru á bandaríska sjónvarpsskjái strax í kjölfarið, en áætlað er að um meira en hundrað þætti verði að ræða. asgeirhi@mbl.is

R2D2 á rauða dreglinum,.
R2D2 á rauða dreglinum,. Reuters
Stormsveitarmenn voru út um allt.
Stormsveitarmenn voru út um allt. Reuers
Hjónin Forest og Keisha Whitaker koma til sýningarinnar.
Hjónin Forest og Keisha Whitaker koma til sýningarinnar. Reuters
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant