Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| AP
| 13.8.2008
| 9:12
Í mál við Parísi
Kvikmyndafyrirtækið Worldwide Entertainment Group hefur höfðað skaðabótamál á hendur Parísi Hilton og segir hana ekki hafa staðið við samninga um kynningu á kvikmyndinni National Lampoons Pledge This!
París lék í myndinni og var þar að auki titluð aðalframleiðandi hennar. Krefst fyrirtækið 75.000 dollara í skaðabætur frá Parísi, en hún og fyrirtæki hennar, Paris Hilton Entertainment Inc., fékk greidda eina milljón dollara frá Worldwide fyrir leik Parísar í myndinni, auk þess sem í samningum var ákvæði um að París tæki þátt í kynningu og markaðssetningu myndarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









