Nýtt tengslanet slær í gegn
David Hasselhoff hefur stofnað sitt eigið tengslanet. Reuters
Strandljónið David Hasselhoff hefur stofnað sitt eigið tengslanet, Hoffspace. Þar birtir hann myndbönd af eigin afrekum í Gumball-kappakstrinum og aðdáendur birta myndir af sér á hinum ýmsu ferðamannastöðum með skilti sem á stendur „Hoff around the world".
Upplýsingaflæðið á tengslanetum á borð við MySpace og facebook getur verið yfirþyrmandi. Í netheimum tengist fólk í hið endalausa, hafi það á annað borð deilt skólabekk eða lestarklefa á einhverjum tímapunkti ævinnar.
Hasselhoff eða The Hoff segir í skilaboðum á Hoffspace að það komi honum alltaf jafn mikið á óvart á ferðalögum hans um heiminn að hvar sem hann kann að stíga niður fæti þá þekkir fólk hann.
Hvort sem það er í Evrópu, Ástralíu, Indlandi, Filippseyjum eða hjá Zulu-mönnum í Suður-Afríku.
Sú staðreynd fékk The Hoff til að hugsa á þá leið að ólíkt fólk sem hefði ekkert sameiginlegt í þessu lífi fyrir utan hann ætti skilið að fá tækifæri til að tala saman... um hann og bætir því við að heimurinn væri án efa betri ef allir töluðu örlítið meira saman.









