Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 25.8.2008
| 8:44
Fallegasti ólympíukeppandinn valinn
Fallegasti keppandinn á óympíuleikunum, sem lauk í gærkvöldi í Peking, var spjótkastarinn Leryn Franko frá Paragvæ. Það var að minnsta kosti niðurstaða ritstjórnar blaðsins Village Life, sem gefið var út í ólympíuþorpinu í Peking.
Væntanlega hefur þessi titill ekki komið Franko á óvart því hún hefur tekið þátt í fegurðarsamkeppni þar sem valin var ungfrú Paragvæ og hún var einnig með í keppninni um ungfrú bikiníalheim.
Franko, sem er 26 ára gömul, gekk hins vegar ekki eins vel í spjótkastkeppninni á ólympíuleikunum. Hún keppti í riðli með Ásdísi Hjálmsdóttur og kastaði spjótinu 45,34 metra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin










