Mesta áhorf sögunnar
Sjónvarpsútsendingar frá nýloknum Ólympíuleikum í Peking fengu víðast hvar mikið áhorf en óvíða meira en í Bandaríkjunum þar sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC heldur því fram leikarnir hafi verið áhorfsmesti viðburður í þarlendri sjónvarpssögu.
Útsendingar NBC frá Peking náðu til alls 214 milljóna áhorfenda á þá 16 daga sem leikarnir stóðu og fóru þar með fram úr þeim 209 milljónum áhorfenda sem fylgdust með ólympíuleikunum í Atlanta 1996.
Sjónvarpsstöðin sendi út alls 3.600 klukkustundir af efni frá Peking um hina ýmsu margmiðlunarmiðla sína - þar á meðal farsíma og vef - sem er meira efni en nokkru sinni fyrr frá einum viðburði. NBC greiddi alls 894 millj. dala (um 74 milljarða króna) fyrir útsendingarréttinn í Bandaríkjunum.
Í The Guardian kemur fram að NBC hafi þó endurheimt allt þetta fé og vel það því auglýsingatekjurnar af útsendingu leikanna sé áætlaður um milljarður bandaríkjadala eða um 83 milljarður króna.
Fimm áhorfsmestu viðburðir bandarískrar sjónvarpssögu hafa allir verið ólympíuleikar. Á eftir Peking og Atlanta koma vetrarleikarnir í Lillehammar í Noregi 1994 með 204 milljónir áhorfenda, þá sumarleikarnir í Aþenu 2004 með 203 milljónir áhorfenda og sumarleikarnir í Seul árið 1998 með 194 milljónir áhorfenda.
Meðaláhorf á leikana 2008 á besta útsendingartíma NBC var 27,7 milljónir, 11% aukning frá leikunum í Aþenu fyrir 4 árum.









