Bara bull í blaðurskjóðu

Áköf neyðaróp frá konu, „hjálp, hjálp, hjálp“, bárust frá húsi nokkru í New Jersey í Bandaríkjunum fyrir nokkrum dögum og voru nágrannarnir þá ekki seinir á sér að kalla á lögregluna.

Er laganna verði bar að knúðu þeir dyra en þegar enginn varð til að opna brutu þeir upp útihurðina. Þegar inn var komið var þar ekki sálu að sjá, þ.e.a.s. engan nema páfagauk, sem öskraði í sífellu á hjálp.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem blaðurskjóðan Luna, sem er 10 ára gömul, kemst í kast við lögin ef svo má segja. Fyrir sjö árum heyrðist mikill barnsgrátur í húsinu, tímunum saman, og þá var að sjálfsögðu kallað á fulltrúa barnaverndarnefndar.

Eigandinn segir, að úr vöndu sé að ráða því að Luna tíni upp úr sjónvarpinu alls kyns hljóð og eigi síðan til að festast í sumum, sem henni líkar trúlega vel við. svs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is