Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 6.9.2008
| 7:32
Draugabanar snúa aftur
Fyrirtækið Sony er sagt hafa ráðið handritshöfundana Lee Eisenberg og Gene Stupnitsky til skrifa handrit að nýrri Ghostbusters-mynd. Eisenberg og Stupnitsky eru þekktastir af skrifum fyrir bandarísku Office-þættina.
Ekki er ljóst hvort leikararnir Dan Aykroyd, Bill Murray og Ernie Hudson bregða sér á ný í hlutverk draugabana eða hvort leikstjóri fyrstu myndarinnar, Ivan Reitman, leikstýrir þeim á ný.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









