Áhorfendum hryllti við lundaáti Ramsay

Gordon Ramsey. stækka

Gordon Ramsey.

Margar kvartanir bárust Ofcom, bresku stofnuninni sem hefur eftirlit með útsendingum sjónvarpsstöðva þar í landi í kjölfar þess að sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay snæddi íslenskan lunda í sjónvarpsþættinum The F Word á Channel 4.

Ofcom bárust 42 kvartanir vegna lundaátsins en kvað svo upp þann úrskurð, að Ramsay hefði ekki gert neitt rangt þar sem lundi er hluti af mataræði Íslendinga.

Ofcom komst einnig að þeirri niðurstöðu, að fuglaveiðarnar færu fram á mannúðlegan hátt og að dýrin þyrftu ekki að þola miklar kvalir.

Áhorfendurnir kvörtuðu undan því að lundar væru í útrýmingarhættu og að horfa upp á drápin á þeim væri truflandi.

Ofcom tilkynnti að reglulega mætti sjá uppeldi, veiði og dráp á mismunandi dýrum í The F Word og að áhorfendur hefðu verið varaðir við áður en lundadrápið og átið hófst á skjánum.

The F Word

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is