Sefur í sokkum og hönskum

Viktoría á tískuvikunni í New York fyrr í mánuðinum.
Viktoría á tískuvikunni í New York fyrr í mánuðinum. Reuters

Viktoría Beckham sefur í þykkum sokkum og hvítum bómullarhönskum einum klæða til að sporna við ellinni. „Davíð heldur að ég sé biluð,“ hefur breska blaðið The Sun eftir henni.

„Ég ber þykkt krem á fæturna og fer í sokka fyrir svefninn. Ég ber líka á mig þykkan handáburð og fer í hanska.“

Viktoría er 34 ára. Hún segir að þetta sé eitt af tíu fegurnarleyndarmálum sem hún búi að, og viðurkennir ennfremur að hún gæti þess vandlega að augnabrúnirnar á sér séu ætíð í toppstandi.

„Ég ver meiri tíma í þær núorðið. Ég hugsaði alltaf sem svo, að þetta væru bara augnabrúnir, en núna veiti ég þeim meiri athygli. Ég bursta þær og gæti þess vandlega að plokka þær ekki of mikið.“

Eftir að Viktoría og Davíð fluttu til Los Angeles í fyrra er Viktoría farin að mæta reglulega í líkamsrækt. Fram að þessu hefur hún lagt fæð á slíkt sprikl.

Hún segir við The Sun: „Ég hef farið fjórum sinnum í pilates og ætla að fara oftar. Ég hreinlega þoli ekki íþróttaföt og hata flatbotna skó. Í pilates er hægt að vera í sokkum og maður svitnar ekki. Mér finnst ekki heldur mjög gaman að svitna.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson