PETA vill nýta brjóstamjólk í eftirrétti
Fyrirtækið Ben & Jerry's, sem þekkt er fyrir ýmsar nýstárlegar bragðtegundir í ísframleiðslu sinni, hefur verið hvatt til að ganga skrefi lengra og hefja framleiðslu á ís úr brjóstamjólk. Dýraverndunarsamtökin PETA, sem til þess arna hvetja, telja að með þessu sé bæði hag neytenda og mjólkurkúa betur borgið.
„Ef Ben & Jerry's skiptu kúamjólk í ísum sínum út fyrir brjóstamjólk, myndu viðskiptavinir ykkar – sem og kýr – hafa hag af því,“ segir Tracy Reiman, aðstoðarforstjóri PETA, í bréfi til ísframleiðandans. „Með því að nota kúamjólk í vörur ykkar eruð þið að stefna heilsu viðskiptavina ykkar í hættu. Sýnt hefur verið fram á tengsl mjólkurvara við sykursýki í börnum, ofnæmi, harðlífi, offitu og krabbamein.“
Talsmenn PETA búast ekki við að farið verði að hugmyndum þeirra í bráð, en segjast meðal annars vilja vekja athygli á slæmum aðbúnaði mjólkurkúa.
„Við áttum okkur á því að hugmyndin er að vissu leyti fjarstæðukennd, og að hæpið sé að hrinda henni í framkvæmd,“ segir Ashley Byrne, verkefnisstjóri hjá PETA. „En að sama skapi er frekar fjarstæðukennt að við séum að drekka mjólk úr kúm.“
Hæpið í framkvæmd
„Við fögnum nýstárlegum aðferðum PETA til að vekja athygli á málstað sínum, en teljum að hentugast sé að mjólk móður renni til barns hennar,“ segir Sean Greenwood, talsmaður Ben & Jerry's, í bréfi til AP-fréttastofunnar.Í bréfi sínu vísa PETA til fordæmis svissneska veitingamannsins Hans Lochers, sem nýverið kynnti áform sín um að nota brjóstamjólk í súpur og sósur. Hann býður konum í nágrenni veitingastaðar sína sem svarar nærri 1500 krónum fyrir mjólkurlítrann, en gengur illa að afla þeirrar mjólkur sem hann telur sig þurfa.
Slíkur mjólkurskortur gæti sett stein í götu ísframleiðenda, þar sem um hálfan lítra af mjólk þarf til að framleiða hvern lítra af ís.









