Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| 24 stundir
| 4.10.2008
| 5:30
| Uppfært
7:36
Kýldi hákarl kaldan: Bjargaði hundi sínum
Greg LeNoir er hugaður maður. Þegar hákarl réðst á hund hans við höfnina í Flórída þurfti Greg ekki að hugsa sig tvisvar um heldur stökk beint út í sjóinn og slóst við hákarlinn.
Tilburðir Gregs nægðu til að fæla hákarlinn á brott og hvuttinn gat synt í land. Hundurinn, sem ber nafnið Jake, hélt lífi en hákarlinn er líklega enn svangur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









