Jákvæð hugsun skilar miklu

Umfram allt ætti fólk að horfa fram á við um þessar mundir. Reyna að vera jákvætt, setja sér markmið og ekki velta sér upp úr hlutunum. Byggja sjálft sig upp og hlúa að þeim sem í kringum það eru. Fræði Brians Tracys hafa hjálpað mörgum í gegnum tíðina og eiga ekki síst við í dag.

„Eins og ástandið er í dag myndi Brian Tracy líklega segja okkur að anda djúpt,“ segir Rósa Traustadóttir, leiðbeinandi fyrir Brian Tracy International, en hún starfrækir stofuna Hugform sem býður upp á ýmis námskeið. Mikilvægt sé að fara vel yfir stöðuna, hlusta á það sem aðrir hafa að segja og forðast að taka handahófskenndar ákvarðanir.

„Lykilsetning í fræðum Brians Tracys er: Gerðu það sem þú getur með það sem þú hefur. Reynum síðan að hafa ekki of miklar áhyggjur af hinu.“ Hún segir það mikilvægt að fólk horfi til framtíðar, skoði hvar það standi nú og finni stökkpallinn. Auðvitað þurfi að skoða af hverju við séum þar sem við erum en fyrst og fremst þurfi að horfa fram á við án þess að eyða of mikilli orku í að finna sökudólgana. Nú þurfi yfirmenn að peppa starfsfólk sitt upp og halda í jákvæðnina.

Að finna það mikilvæga

„Það er lykilatriði að byggja sig upp því gott sjálfsmat stýrir miklu í manns eigin lífi,“ segir Rósa. „Góður stjórnandi hefur gott sjálfsmat og hann getur byggt upp starfsfólkið og fengið fram það besta úr því, meðal annars með hrósi fyrir það sem vel er gert,“ segir hún. Ávallt sé mikilvægt að huga vel að mannlegum samskiptum, hvort sem það er á vinnustaðnum eða annars staðar. „Það skiptir miklu að vera leikinn í mannlegum samskiptum. Vera jákvæður, hlusta á aðra og vera ófeiminn við að brosa.“

Það sem máli skiptir

Þá þurfi fólk að gera sér grein fyrir því sem mestu máli skiptir. Brian Tracy segi að það sé fjölskyldan sem sé í 1. sæti. Þarfir hennar komi fyrst og um þessar mundir sé mikilvægt að vera meðvitaður um það.

„Við skulum vera þakklát fyrir það sem við höfum og taka utan um okkar nánustu, byggja þau upp en forðast að rífa þau eða okkur sjálf niður.Maður á líka að taka ábyrgð á gjörðum sínum og í ljósi þess sem nú er að gerast í samfélaginu er þetta mjög mikilvægt,“ segir Rósa. Þetta beri öllum að gera.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Lögreglumaður í leit að sjálfum sér

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar.
16:50 Breska lögreglan notast mikið við eftirlitsmyndavélar við störf sín. Á dögunum var lögreglumaður sem var að fylgjast með skjánum var við grunsamlegan mann. Lögreglumaðurinn hafði samband við lögreglumann sem var nálægur og bað hann um að svipast um eftir honum. Leitin tók enda eftir um 20 mínútur þegar lögreglumaðurinn áttaði sig á að hann var að leita að sjálfum sér. Meira »

Frosið súrkál olli umferðaröngþveiti

13:42 Gríðarlegt umferðaröngþveiti varð á hraðbraut í Þýskalandi í gærmorgun þegar staflar af súrkáli féllu úr flutningabifreið sem ók aftan á annan bíl. Súrkálið fraus fast við veginn og olli 10 km langri umferðarteppu á háannatíma. Meira »

Glæpamennirnir halda sig inni

Vopnaður lögreglumaður stendur vaktina við öryggisfangelsi í kuldanum í Belgrad, höfuðborg Serbíu.
16:40 Mikið kuldakast hefur verið í Serbíu að undanförnu með tilheyrandi snjóþunga. Veðrið hefur ekki aðeins haft áhrif á líf almennra borgara því glæpamenn hafa haft frekar hægt um sig í vetrarfærðinni. Ríkisstjórn landsins hefur greint frá því að glæpatíðnin hafi dregist saman um 40% að undanförnu. Meira »

Klám eða kynlífsleikföng

13:36 Framkvæmdastjóri franskrar kynlífsvöruverslunar er fyrir rétti í Frakklandi þar sem tekist er á um hvort hann hafi brotið lög um klám með því að selja vörur sínar í innan við 200 metra fjarlægð frá skóla. Meira »

finnur.is