Ritchie fær 10 milljónir og þegir

Guy Ritchie og Madonna.
Guy Ritchie og Madonna. Reuters

Í skilnaðarsamningi poppdrottningarinnar og leikstjórans Guys Ritchie kemur fram að hún lætur hann fá tíu milljón pund. Hluti af samningnum felst í því að Ritchie er bannað að tala nokkurn tímann opinberlega um sjö og hálfs árs hjónaband þeirra, samkvæmt dagblaðinu The Daily Mail.

Lögfræðingar gengu frá samningnum fyrir helgi og samkvæmt vinum Ritchies er honum „mjög létt“ og að hann sé „mun hamingjusamari“ nú er hann er laus úr viðjum þessa hjónabands.

Madonna, sem mun eiga um 300 milljónir punda, hefur samþykkt að hann hafi fullan rétt til að umgangast syni þeirra, hinn átta ára Rocco og David Banda, þriggja ára, sem þau ættleiddu.

Vinur Ritchies segir ennfremur að hann hafi viljað losna úr hjónabandinu. „Hann hafði fengið nóg af sirkusnum kringum Madonnu og er gríðarlega létt. Þetta snerist aldrei um peninga. Honum finnst mikilvægast að hafa gott samband við börnin, sem hann dáir, og að geta lifað rólegu lífi.“

Eins og fyrr segir samþykkir Ritchie að þegja um sambandið. „Hann er alveg til í að ganga að því,“ segir vinurinn. „Það er ekki í hans anda að vera að kjafta frá. Hann vill bara lifa sínu lífi. Lífi Madonnu í Englandi er lokið og hún ætlar að flytja aftur til Bandaríkjanna, þar sem börnin munu ganga í skóla.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant