Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 22.10.2008
| 16:14
| Uppfært
17:18
Breska heimsveldið hörfaði
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur MBL Sjónvarpi.Meðan að fjöldi Íslendinga lét mynda sig hjá Þorkeli Þorkelsyni ljósmyndara í dag til að sýna fram á hvernig raunverulegir hryðjuverkamenn og óvinir breska heimsveldisins líta út hvarf nafn Íslands af heimasíðu breska fjármálaráðuneytisins þar sem er listi yfir lönd sem eru beitt refsiaðgerðum vegna hryðjuverka á sviði fjármála.
Ekki er vitað hvort flótti brast á breska heimsveldið við þessar aðgerðir. Hryðjuverkamennirnir mættu með fjölda vopna svo sem farsíma, greiðslukort, snuð, sverð og geldingartól.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









