Guns N' Roses og lýðræði Kína

Axl Rose í einkenningsbúningi sínum
Axl Rose í einkenningsbúningi sínum AP

Aðdáendur bandarísku rokkhljómsveitarinnar Guns N' Roses hafa lengi beðið eftir nýju efni frá hljómsveitinni og fengu í dag loksins eitthvað fyrir sinn snúð. Fyrsta laginu af plötunni Chinese Democracy, sem hefur verið í vinnslu á mörg ár, var formlega sleppt í útvarpsspilun í morgun.

Þetta er reyndar ekki það fyrsta sem heyrist af plötunni, því þegar hafði efni af henni lekið á netið og m.a. voru 9 lög birt á bandarískri bloggsíðu í sumar. Bloggarinn sætti í kjölfarið FBI rannsókn fyrir brot á höfundarréttarlögum og hefur verið stefnt fyrir rétt. Ef hann verður dæmdur sekur gæti hann átt allt að þriggja ára fangelsi í vændum.

Lagið sem sett var í spilun í dag er titillag plötunnar Chinese Democracy og er svipað þeirri útgáfu sem þegar hafði lekið á netið, en þó í mun meiri gæðum. Að sögn vefrits Rolling Stone tónlistartímaritsins hefst lagið með einkennandi öskri söngvarans Axl Rose áður en gítarinn tekur við.

Platan sjálf er væntanleg í plötubúðir í lok nóvember, en Guns N' Roses hafa ekki gefið út plötu í 15 ár, eða síðan The Spaghetti Incident? kom út árið 1993. Nú er að sjá hvort biðin hafi verið þess virði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson