Aulahúmor á kostnað íslenskra bankamanna

Í ástralska dagblaðinu Herald Sun í dag er að finna nokkra brandara á kostnað bankamanna í kreppunni og eru sumir þeirra með íslenskum áherslum.


Erfitt getur verið að snara orðaleikjum svo vel sé en hér koma nokkrir af þessum bröndurum sem ganga á meðal galgopa innan bankageirans:


Bankakreppan hefur hjálpað mér að koma undir mig fótunum sagði bankamaðurinn sem þurfti að selja bílinn.


Hver er höfuðborg/höfuðstóll íslands?  Um $1,50.


Hvað eiga íslenskir bankamenn og stripplingar sameiginlegt?  Þeirra dýrustu djásn hafa verið fryst.


Framkvæmdastjóri fyrirtækis hélt samkeppni um sparnað innan fyrirtækisins vegna kreppunnar og voru 100 dalir í verðlaun. Verðlaunin hlaut millistjórnandinn sem stakk upp á því að verðlaunin yrðu lækkuð í 10 dali.


Hvernig skilgreinir þú bjartsýni?
Bankastarfsmann sem straujar fimm skyrtur á sunnudegi.


Hver er munurinn á bankamanni og stórri flatböku? Flatbakan getur mettað/brauðfætt fjögurra manna fjölskyldu.


Hvers vegna eru fasteignasalar hættir að líta út um gluggann á morgnanna? Því annars hafa þeir ekkert að gera eftir hádegi.


Hvað segir maður við áhættusjóðsstjóra sem getur ekki losað sig við verðlaus verðbréf?
Einn hamborgara með frönskum takk.


Hvort er verra, bankakreppan eða skilnaður?
Bankakreppan, í henni missir maður helming eignanna en situr uppi með konuna.


Bankinn endursendi ávísun frá mér með orðunum að ekki væri næg innistæða fyrir henni.
Á það við mig eða bankann?


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is