Lohan kippt út úr Ugly Betty

America Ferrera aðaleikkona þáttanna Ugly Betty.
America Ferrera aðaleikkona þáttanna Ugly Betty. Reuters

Tilkynnt hefur verið að hætt hafi verið við áform um að leikkonan Lindsay Lohan komi fram í sex þáttum í sjónvarpsþáttaröðinni Ugly Betty.

Sögum ber ekki saman um ástæður þessa en svo virðist sem Lohan og aðalleikkonu þáttanna America Ferrera hafi lent saman við upptökur þeirra.

 

Vinir Lohan staðhæfa að Ferrera hafi verið andstyggileg við hana og er því jafnvel haldið fram að hún hafi kippt niður um hana buxunum. Aðrir heimildarmenn staðhæfa að Lohan hafi frá upphafi farið í taugarnar á starfsfólki þáttanna vegna yfirlætis.

 Búið var að taka upp fjóra þætti þar sem Lohan kom fram en ekki liggur fyrir hvort hún sjáist í þeim þáttum eða hvort atriði hennar verða klippt út úr þeim.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler